Silfurleikar ÍR 2022

Upplýsingar um greiðsluskilmála og almenna skilmála


I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda eða forráðamanna þeirra og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda/forráðamanna við því að hlíta skilmálunum.
  2. Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, hvorki á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn mótsins og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
  3. Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum, tímaseðli og skipulagi móts vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir annan en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir eða forráðamönnum þeirra séu þeir undir 18 ára aldri. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar vegna framkvæmdar mótsins, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, tilkynningar eða upplýsingar er varða mótið á vegum mótshaldara. Skráðum aðilum gefst kostur á að skrá sig af póstlista mótsins.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
  7. II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

    1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
    2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
    3. Þátttökugjöld fæst ekki endurgreitt.
    4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta mót.
    5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv. verða þátttökugjöld ekki endurgreidd.
    6. Greiðsla fer í gegnum greiðslugátt Valitors.