Gullspretturinn 2024


Keppnishaldari

Björgunarsveitinn Ingunn
Kt. 500692-2199
Björgunarsveitin Ingunn
Símanr.: 792 6200
ingunn@landsbjorg.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Gullspretturinn 2024
Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn sem fram fer þann 15. júní og hefst kl. 11 við gróðurhúsið niður við vatn.

Vegalengd og leið
Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn.
Tímataka fer fram með flögum.

Skráning og þátttökugjald
Skráning fer fram hér á netskráning.is og er opin til kl. 20 fimmtudaginn 13. júní.
Afhending gagna hefst kl. 8 á hlaupdag. Hámarksfjöldi þátttakenda er 350 manns.

Þátttökugjald er kr. 7.500 kr. fyrir 15 ára og eldri.
Ath! Börn 14 ára og yngri verða að hlaupa í fylgd með fullorðnum. Skráningargjald 1.500 krónur fyrir þau.
Athugið að hægt verður að afskrá sig og fá þátttökugjöld endurgreidd til og með 31. maí.

Verðlaun
Verðlaun fyrir fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki og vegleg útdráttarverðlaun.
Þátttakendum boðið upp á hverabrauð, Egils gull, Kókómjólk, Hleðslu og reyktan silung að loknu hlaupi.

Annað
Búningsaðstaða stendur keppendum til boða í Íþróttahúsi Bláskógabyggðar á Laugarvatni.
Að auki geta keppendur geymt verðmæti í verðmætageymslu í Íþróttahúsinu á meðan hlaupi stendur.

Aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni er innifalinn.

Til að forðast umferðaröngþveiti niður við vatn er þátttakendum bent á að leggja bílum sínum á malarvellinum sunnan við íþróttahúsið.

Nánari upplýsingar inn á vefsíðu hlaupsins gullspretturinn.is

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

15.06.2024