Fellahringurinn 2019

Upplýsingar um greiðsluskilmála og almenna skilmála


Gildir frá 1. ágúst 2017.

I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og Fellahringurinn og felur skráning í hlaup á vegum Fellahringsin í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Fellahringurinn ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist Fellahringurinn eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í mótinu.
  3. Fellahringurinn er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála mótsins fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmála mótsins verður skrifleg athugasemd að berast Fellahringnum innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í hlaupið samþykkir að veita Fellahringurinn heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótsin. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu mótsins.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir, sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum á vegum Fellahringsins, af þátttakendum í mótinu áskilur Fellahringurinn sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni mótsins.
  7. Fellahringurinn gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli í Fellahringinn er reiknivél sem birtir þátttökugjald í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð. Enginn virðisaukaskattur er lagður á þá fjárhæð.
  3. Þátttökugjöld í fellahringnum er hægt að fá endurgreidd að hluta: 75% þar til 2 vikum fyrir mót, 50% 7-14 dögum fyrir mót fyrir mót en eftir það fæst skráningargjald ekki endurgreitt.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í mótinu ekki verða endurgreidd.
  6. DalPay Retail er endursöluaðili fyrir Fellahringinn og á kreditkortayfirliti þínu mun standa: dalpay.is +354 412 2600