Mt. Esja Ultra


Keppnishaldari

Mt. Esja Ultra
Kt. 500622-1990
Mt. Esja Ultra

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Mt. Esja Ultra

Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í þrettánda sinn laugardaginn 15. júní

2024. Keppt verður í Mt. Esja Maraþoninu og glænýrri leið sem verður u.þ.b. 21 km með 1.500 m samanlagðri hækkun. Einnig verður hið vinsæla ævintýrahlaup fyrir krakka. 


NÝTT! MT. ESJA HÁLFT MARAÞON:

Leiðin verður u.þ.b. 21 km með 1.500 m samanlagðri hækkun. Hlaupið hefst við Esjustofu og verður farin vel útfærð og skemmtileg útsýnisleið um Esjurætur og -hlíðar. Tilvalin æfingakeppni fyrir lengri utanvega- og fjallahlaup!



MT. ESJA MARAÞON:

Í þessu vinsæla hlaupi, sem var fyrst haldið árið 2015, eru farnar eru fimm mismunandi leiðir upp Esjuna. Hlaupið er eitt erfiðasta fjallahlaup landsins og er vegalengdin um 43 km með 3.500 m samanlagðri hækkun.





STEINNINN - THE ROCK:

Steinninn er 3 km leið og 600 metra hækkun frá Esjustofu upp að Steini. Hlaupið var fyrst haldið árið 2019 og hefur fest sig í sessi. Þetta er í raun tímataka upp að Steini og er alltaf gaman að sjá keppendur bæta tíma sinn. Markið/tímamotta er við Steininn og keppendur geta því gengið eða skokkað rólega niður að Esjustofu þar sem þeir fá Esju “Finisher” glasið og léttar veitingar á drykkjarstöð.


ÆVINTÝRAHLAUP

Hlaupið var fyrst haldið 2021 og tókst mjög vel. Sprækir krakkar hlupu einir eða í fylgd

foreldra skemmtilega og fjölbreytta leið í skóginum. Leiðin verður vel merkt en starfsmenn

hlaupsins hlaupa einnig með og passa að allir koma í mark með bros á vör. 


Keppnisgrein og verð

Mt. Esja maraþon: Vegalengd 43 km, hækkun 3.500 m 

Forskráningarverð: 16.900 kr. (Til 7. apríl)

Eftir 8. apríl: 19.900 kr. 

Eftir 1. maí: 24.900 kr.


Mt. Esja hálft maraþon: Vegalengd 21 km, hækkun 1.500 m 

Forskráningarverð: 9.900 kr. (Til 7. apríl)

Frá 8. apríl: 11.900 kr. 

Frá 1. maí: 14.900 kr.


Steinninn: Vegalengd 3 km, hækkun 600 m 

Forskráningarverð: 2.900 kr. (Til 7. apríl)

Frá 8. apríl: 3.490 kr. 

Frá 1. maí: 4.900 kr.


Ævintýrahlaup í Esjuskógi fyrir spræka krakka (2 km) 

Börn foreldra/forráðamanna sem keppa í hálfu eða heilu maraþoni fá FRÍTT í hlaupið.
ATH. að skrá börn á sama tíma og þú skráir þig. Forráðamaður má hlaupa með. Sláið inn afsláttarkóðann BARN til að virkja afsláttinn þegar barnið er skráð.


Innifalið í skráningargjaldi

Esju-bjórglasið fyrir þau sem klára heilt og hálft maraþon innan tímamarka. Óvæntur glaðningur fyrir börnin.

Finisher gjöf fyrir þau sem klára maraþonið innan tímamarka.

Tímataka, keppnisnúmer/flaga og brautargæsla.

Íþróttadrykkir og næring á drykkjarstöð við Esjustofu.

Léttar veitingar eftir hlaup. 


Skráningargjald er ekki endurgreitt en hægt verður að gera nafnabreytingar til og með 3. júní.


STAÐSETNING

Allar vegalengdir verða ræstar frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að

neðan). Keppendur skulu mæta tímanlega og þeir sem keppa í maraþoninu verða að skrá

sig sérstaklega hjá keppnisstjóra fyrir keppni. Nánari upplýsingar verða sendar á alla keppendur þegar nær dregur.


RÁSTÍMAR

Mt. Esja maraþon - kl. 8:00

Mt. Esja hálft maraþon - kl. 10:00 

Steinninn - kl. 11:00

Ævintýrahlaup í Esjuskógi – kl. 12:00


VERÐLAUN 

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum í Steininum, hálfu og heilu maraþoni. 

Sigurvegarar í Steininum, hálfu og heilu maraþoni fá að auki í verðlaun hinn

margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar. 


Aldurstakmörk

Steinninn: 14 ára

Mt. Esja hálft maraþon: 16 ára

Mt. Esja maraþon: 18 ára


Tímatakmörk

Steinninn: 90 mínútur

Mt. Esja hálft maraþon: 6:00 klst.

Mt. Esja maraþon: 10:00 klst. þegar lagt er af stað í síðasta sinn upp Esjuna.


Nánari upplýsingar:

Vefsíða hlaupsins: http://www.mtesjaultra.is 

Facebook: http://www.facebook.com/mtesjaultra 



Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

15.06.2024